Fimmtudagur, 26. júlí 2007
Jæja Dagur 4......fúfffffff :-)
Hæ. hæ allir saman.
Jæja þá er ég komin heim af æfingu með þjálfaranum.....gekk bara mjög vel í dag
Í dag var ég látin hita upp á skíðavélinni í 30 mín, síðan gerði ég 300 magaæfingar, já ég sagði 300, enda var ég lagalega búin eftir það (en hvíldi mig auðvitað á milli, annars held ég að ég hefði aldrei getað þetta)
En þá var ég heldur ekki búin....því þá fór ég að lyfta og gera æfingar inn í sal í ca 20 mín, svo var það aftur á skíðavélina í 20 mín
Ég var orðin laglega þreytt.....hahaha.
Síðan fékk ég minn próteindrykk með jarðaberjabragði í þetta skiptið og hann var bara nokkuð góður verð ég að segja Þá var dagurinn í dag búinn og ég fór og náði í snúlluna mína, kom svo heim og lét renna í MJÖG HEITT bað til að ná úr mér strengjunum sem ég er með bæði í löppunum og upphandleggjunum
En þetta kemur allt saman og ég er að standa mig bara mjög vel, kemst áfram á því hversu þrjósk ég er og svo auðvitað vegna þess hve mikið mig langar að grenna mig
Þangað til á morgun......kveð í bili
Knús og kossar til ykkar sem eru að peppa mig áfram, mér veitir alveg af góðu peppi
Pæjan
Tenglar
Engillinn minn
Vinir/aðrir Bloggarar
Hollar Uppskriftir og Matur
- Matarholan
- Matarvefurinn
- Á næstu grösum
- Heilsuhúsið
- Maður Lifandi
- Solla á grænum kosti
- Hvað er í matinn?
Soon to be babe´s (Átaksbloggarar)
Ýmsir tenglar
218 dagar til jóla
Hvað eru margir í átaki ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vá hvað þú stendur þig vel! Ég vildi óska þess að ég væri jafn dugleg og þú ;) en til hamgingju með að vera svona dugleg :)
ókunnug (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 19:23
Þekki þig ekki neitt vildi bara hrósa þér fyrir hvað þú ert dugleg =)) Vá 300 magaæfingar það er ekkert smá úffffffff vildi að ég hefði þína þrjósku og dugnað =))
Rúna (IP-tala skráð) 26.7.2007 kl. 19:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.