Þriðjudagur, 16. október 2007
Alveg frábært.....
Hæ hæ allir
Já héðan er enn allt gott að frétta... Fór í skólann í dag og lærði heilmikið, svo var ég spurð hvort ég vildi koma í kórinn í skólanum en ég er ekki alveg viss með það, þar sem ég hef verið í kór áður og það er ekki alveg fyrir mig...en við sjáum til
Fór svo í ræktina áðan og var í 1 og 1/2 tíma að brenna og lyfta.....fór eftir prógramminu og þetta var alveg hörkupúl Byrjaði á að brenna/hita upp í 10 mín og fór svo og lyfti í 20, brenndi aftur í 10 mín og lyfti í 30 mín og endaði svo á að brenna aftur í 20 mín
My GOD hvað þetta var samt gott og mér leið svo vel eftir á.....alveg frábært að komast aftur í ræktina og púla smá
Mamma er að koma heim frá Ísrael á eftir og ég ætla að ná í skvísuna mína á leikskólann og svo förum við í smá heimsókn til "ömmu" ......ég var að búa til skrapp albúm handa henni þar sem hún varð 60 ára um daginn og hún var úti á afmælinu sínu svo hún fær pakka þessi elska
Svo verður bara farið heim aftur og eldað og borðað, baðað barnið, lesið og farið með bænirnar og svo þarf mín að læraaaaaaaaa .......já þarf að læra þónokkuð en það reddast allt
Ég ætla því ekki að hafa þetta lengra núna en bið að heilsa ykkur í bili og farið vel með ykkur elskurnar
Kær kveðja Pæjan
Tenglar
Engillinn minn
Vinir/aðrir Bloggarar
Hollar Uppskriftir og Matur
- Matarholan
- Matarvefurinn
- Á næstu grösum
- Heilsuhúsið
- Maður Lifandi
- Solla á grænum kosti
- Hvað er í matinn?
Soon to be babe´s (Átaksbloggarar)
Ýmsir tenglar
336 dagar til jóla
Hvað eru margir í átaki ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.