Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
Laugardagur, 20. október 2007
Vahúúúúúú......
Hæ hæ allir saman
Vigtin sýndi 111 kg, s.s 3,1 kg farin í viðbót Það eru þá farin 10,9 kg allt í allt
Þyngd : 111 kg
Fituprósenta : 37,8 %
Upphandleggur : 38 cm
Læri : 76 cm
Mjaðmir : 130,5 cm
Mitti : 118,2 cm
Ég er voða ánægð með þessar tölur, þar sem það eru ca 3 vikur sem fóru í veikindi og vesen
Fór í ræktina í dag og brenndi í næstum 2 tíma....gerði teygjuæfingar og 200 magaæfingar í lokin
Hafið það sem allra best og verið góð við hvort annað
Kær kveðja Pæjan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 18. október 2007
Jæja 2 daga færsla....munið endilega að kvitta :o)
Jæja hæ hæ allir saman.....
Það er búið að vera brjálað að gera í skólanum og ég hef ekkert haft tíma í að blogga....."sowwy"
Fór í skólann í gær eftir foreldrafund hjá barninu og það gekk mjög vel Fór svo í ræktina í 1 og 1/2 tíma og brenndi eins og brjálæðingur
Fór svo bara heim að læra...nóg að gera að teikna Fór svo bara frekar snemma í rúmið að lúlla mér.
Svo í dag var enginn skóli..... svo það var slakað á framundir hádegi og síðan lært og svo farið í ræktina að lyfta í 1 og 1/2 tíma......ég er búin að ákveða það að þegar ég er búin með kortið mitt þar sem ég er núna, ætla ég að prufa Curves líkamsræktina í Kópavogi. Ég er búin að heyra þvílíkt gott af þessu og ætla að skella mér og prufa
Það er voða lítið að frétta annars, það er bara skólinn og ræktin þessa dagana og auðvitað snúllan mín
Ég bið bara að heilsa ykkur í bili og vona að þið hafið það sem allra best
Kær kveðja Pæjan
P.s. Svo er mæling og vigtun á morgun....svo það koma nýjar tölur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. október 2007
Alveg frábært.....
Hæ hæ allir
Já héðan er enn allt gott að frétta... Fór í skólann í dag og lærði heilmikið, svo var ég spurð hvort ég vildi koma í kórinn í skólanum en ég er ekki alveg viss með það, þar sem ég hef verið í kór áður og það er ekki alveg fyrir mig...en við sjáum til
Fór svo í ræktina áðan og var í 1 og 1/2 tíma að brenna og lyfta.....fór eftir prógramminu og þetta var alveg hörkupúl Byrjaði á að brenna/hita upp í 10 mín og fór svo og lyfti í 20, brenndi aftur í 10 mín og lyfti í 30 mín og endaði svo á að brenna aftur í 20 mín
My GOD hvað þetta var samt gott og mér leið svo vel eftir á.....alveg frábært að komast aftur í ræktina og púla smá
Mamma er að koma heim frá Ísrael á eftir og ég ætla að ná í skvísuna mína á leikskólann og svo förum við í smá heimsókn til "ömmu" ......ég var að búa til skrapp albúm handa henni þar sem hún varð 60 ára um daginn og hún var úti á afmælinu sínu svo hún fær pakka þessi elska
Svo verður bara farið heim aftur og eldað og borðað, baðað barnið, lesið og farið með bænirnar og svo þarf mín að læraaaaaaaaa .......já þarf að læra þónokkuð en það reddast allt
Ég ætla því ekki að hafa þetta lengra núna en bið að heilsa ykkur í bili og farið vel með ykkur elskurnar
Kær kveðja Pæjan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. október 2007
LOKSINS KOMIN AFTUR....
Hæ hæ allir saman
Yes, I´m back....hahaha. Loksins er þessum veikindum lokið(krossa fingur og bið til Guðs)
Þetta er búið að vera hreint ömurlegur tími.
Fyrst varð dúllan mín lasin og síðan ég, svo aftur hún og síðan ég, síðan varð hún góð en ég enn lasin, svo vorum við báðar orðnar góðar og þá urðum við aftur báðar lasnar
Jamm þetta var ekki gaman....en nóg af því. Ég fór aftur í ræktina í morgun og það var algjört æði að byrja að brenna. Ég var í 1 klst og 3 korter í dag og brenndi allan tímann. Ég teygði á og í lokin gerði ég 200 magaæfingar
Fór svo í skólann og var auðvitað eftir á þar líka en kennarinn minn er svo æðislegur að ég fæ bara að vinna þetta upp og geri það bara heima í þessari viku
Fer nú létt með það.....ég er í teikningu á húsum og herbergjum, síðan er ég í fjarvíddarteikningu og fleira skemmtilegt, svo það verður allavega gaman að læra heima
Ég vona að þið séuð ekki búin að gefast upp á mér, því ég þarf á áframhaldandi stuðningi og peppi frá ykkur að halda
ÉG ER KOMIN TIL AÐ VERA.......og þið losnið ekki svo auðveldlega við mig því að í þetta skiptið fær fitupúkinn ekki að vinna mig
Endilega kvittið fyrir komu ykkar og það væri alveg frábært að fá pepp frá ykkur dúllurnar mínar
Hafið það sem allra best og verið góð hvort við annað
Kær kveðja Pæjan
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Engillinn minn
Vinir/aðrir Bloggarar
Hollar Uppskriftir og Matur
- Matarholan
- Matarvefurinn
- Á næstu grösum
- Heilsuhúsið
- Maður Lifandi
- Solla á grænum kosti
- Hvað er í matinn?
Soon to be babe´s (Átaksbloggarar)
Ýmsir tenglar
336 dagar til jóla
Hvað eru margir í átaki ?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar