Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Vahúúúúúú......

Hæ hæ allir saman Smile

Vigtin sýndi 111 kg, s.s 3,1 kg farin í viðbót W00t Það eru þá farin 10,9 kg allt í allt Cool

Þyngd : 111 kg

Fituprósenta : 37,8 %

Upphandleggur : 38 cm

Læri : 76 cm

Mjaðmir : 130,5 cm

Mitti : 118,2 cm

Ég er voða ánægð með þessar tölur, þar sem það eru ca 3 vikur sem fóru í veikindi og vesen Frown

Fór í ræktina í dag og brenndi í næstum 2 tíma....gerði teygjuæfingar og 200 magaæfingar í lokin Smile

Hafið það sem allra best og verið góð við hvort annað Halo

Kær kveðja Pæjan Kissing


Jæja 2 daga færsla....munið endilega að kvitta :o)

Jæja hæ hæ allir saman.....Smile

Það er búið að vera brjálað að gera í skólanum og ég hef ekkert haft tíma í að blogga....."sowwy" Halo

Fór í skólann í gær eftir foreldrafund hjá barninu og það gekk mjög vel Cool Fór svo í ræktina í 1 og 1/2 tíma og brenndi eins og brjálæðingur Devil

Fór svo bara heim að læra...nóg að gera að teikna Shocking Fór svo bara frekar snemma í rúmið að lúlla mér.

Svo í dag var enginn skóli.....Wink svo það var slakað á framundir hádegi og síðan lært og svo farið í ræktina að lyfta í 1 og 1/2 tíma......ég er búin að ákveða það að þegar ég er búin með kortið mitt þar sem ég er núna, ætla ég að prufa Curves líkamsræktina í Kópavogi. Ég er búin að heyra þvílíkt gott af þessu og ætla að skella mér og prufa Grin

Það er voða lítið að frétta annars, það er bara skólinn og ræktin þessa dagana og auðvitað snúllan mín Tounge

Ég bið bara að heilsa ykkur í bili og vona að þið hafið það sem allra best Happy

Kær kveðja Pæjan Kissing

P.s. Svo er mæling og vigtun á morgun....svo það koma nýjar tölur.


Alveg frábært.....

Hæ hæ allir Smile

Já héðan er enn allt gott að frétta... Wink Fór í skólann í dag og lærði heilmikið, svo var ég spurð hvort ég vildi koma í kórinn í skólanum en ég er ekki alveg viss með það, þar sem ég hef verið í kór áður og það er ekki alveg fyrir mig...en við sjáum til Grin

Fór svo í ræktina áðan og var í 1 og 1/2 tíma að brenna og lyfta.....fór eftir prógramminu og þetta var alveg hörkupúl Devil Byrjaði á að brenna/hita upp í 10 mín og fór svo og lyfti í 20, brenndi aftur í 10 mín og lyfti í 30 mín og endaði svo á að brenna aftur í 20 mín Shocking

My GOD hvað þetta var samt gott og mér leið svo vel eftir á.....alveg frábært að komast aftur í ræktina og púla smá Happy

Mamma er að koma heim frá Ísrael á eftir og ég ætla að ná í skvísuna mína á leikskólann og svo förum við í smá heimsókn til "ömmu" Wink ......ég var að búa til skrapp albúm handa henni þar sem hún varð 60 ára um daginn og hún var úti á afmælinu sínu svo hún fær pakka þessi elska Joyful

Svo verður bara farið heim aftur og eldað og borðað, baðað barnið, lesið og farið með bænirnar og svo þarf mín að læraaaaaaaaa Undecided .......já þarf að læra þónokkuð en það reddast allt Cool

Ég ætla því ekki að hafa þetta lengra núna en bið að heilsa ykkur í bili og farið vel með ykkur elskurnar Joyful

Kær kveðja Pæjan Kissing


LOKSINS KOMIN AFTUR....

Hæ hæ allir saman Smile

Yes, I´m back....hahaha. Loksins er þessum veikindum lokið(krossa fingur og bið til Guðs) Wink

Þetta er búið að vera hreint ömurlegur tími.

Fyrst varð dúllan mín lasin og síðan ég, svo aftur hún og síðan ég, síðan varð hún góð en ég enn lasin, svo vorum við báðar orðnar góðar og þá urðum við aftur báðar lasnar Sick 

Jamm þetta var ekki gaman....en nóg af því. Ég fór aftur í ræktina í morgun og það var algjört æði að byrja að brenna. Ég var í 1 klst og 3 korter í dag og brenndi allan tímann. Ég teygði á og í lokin gerði ég 200 magaæfingar Devil

Fór svo í skólann og var auðvitað eftir á þar líka en kennarinn minn er svo æðislegur að ég fæ bara að vinna þetta upp og geri það bara heima í þessari viku Blush 

Fer nú létt með það.....ég er í teikningu á húsum og herbergjum, síðan er ég í fjarvíddarteikningu og fleira skemmtilegt, svo það verður allavega gaman að læra heima Grin

Ég vona að þið séuð ekki búin að gefast upp á mér, því ég þarf á áframhaldandi stuðningi og peppi frá ykkur að halda Cool

ÉG ER KOMIN TIL AÐ VERA.......og þið losnið ekki svo auðveldlega við mig því að í þetta skiptið fær fitupúkinn ekki að vinna mig Wink

Endilega kvittið fyrir komu ykkar og það væri alveg frábært að fá pepp frá ykkur dúllurnar mínar Tounge

Hafið það sem allra best og verið góð hvort við annað Heart

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

236 dagar til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 256

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband