Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Veikindiiiiiiiiiiii.....

Hér er allt lasið og því skrifa ég seinna.....

Halló, halló.

Hæ og hó

Jæja ég fór í ræktina í gær og var að lyfta í ca 1 og 1/2 tíma. Ég tók fyrir efri hlutann og þjálfaði, bak, brjóst, tvíhöfða, þríhöfða, maga og mjóbak Cool Fór svo heim að læra og hugsa um snúlluna mína.

Já og svo fór ég í dag......Wink AÐ BRENNA Devil

Ég fór í 1 og 1/2 tíma í dag, byrjaði á skíðavélinni í 30 mín, hlaupabrettið í 10 mín, hjólið í 10 mín, hina skíðavélina (m. f. hendur) í 10 mín, 150 magaæfingar, 2*20 kálfaæfingar og 2*30 rass og læri,  Sick Já þetta var erfiður dagur í dag en samt gott eftir á.

Kom svo heim og var að læra pínu áðan, ætla að klára í kvöld þegar snúlla litla er sofnuð InLove

Annars er voða lítið að frétta, nema bara að afmælisundirbúningurinn er í fullu gangi Halo og brjálað að gera í skólanum.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, ég bið að heilsa ykkur öllum og vona að þið eigið góðan dag Joyful

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Jæja, ég er enn á lífi...

Hæ og hó...Smile

Jæja, ég fór í ræktina á fimmtudag og föstudag og púlaði eins og vanalega....það var lyft á fimmtudag og brennt á föstudag, gerðar magaæfingar og ýmislegt fleira Cool

Fórum svo í afmæli um helgina á Selfoss og það var HRÆÐILEGT veður á heiðinni.....Woundering Við lentum í þoku, rigningu, slyddu, hagléli og snjókomu...þetta var ekki gaman.

Það var voða gaman í afmælinu og síðan þegar við héldum heim á leið, þá lentum við í því að koma að slysi uppi á heiði þar sem 2 bílar höfðu rekist saman....Frown

Það voru sjúkrabílar og löggubílar og ég veit ekki hvað og hvað...þetta var ekki skemmtileg aðkoma, svo var okkur tilkynnt að það yrði allavega 2 tíma bið svo við snérum við og fórum þrengslin og þar var þetta fína veður W00t

Svo er bara búið að vera bilað að gera í lærdómi Blush Ég er mikið í þrívíddarteikningum og grafík núna en mér finnst það algjört æði svo það er bara gaman hjá mér í skólanum Halo

Við erum farin að spekúlera og skipuleggja afmælisveisluna hjá skvísunni og henni er farið að hlakka svo mikið til að fá alla gestina og svo auðvitað pakka InLove  Þetta verður voða gaman, en ég bara er ekki að trúa því að hún sé orðin 3ára....OMG...hvað tíminn er fljótur að líða.

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengur, er að fara að læra og hugsa um matinn og prinsessuna mína, hafið það gott og verið góð við hvort annað Heart

Kær kveðja Pæjan Kissing


Í gær og í dag :o)

Hæ hó Cool

Jæja, þá kemur færsla fyrir daginn í dag og gærdaginn Wink

Fór í gær að lyfta, gekk bara vel..... Smile Ég fór eftir prógramminu sem ég var með og einnig fékk ég prógramm frá þjálfaranum mínum sem ég gat farið eftir Tounge Lyfti í 1 klukkutíma og teygði aðeins.

Svo fór ég í dag að brenna og var í rúman 1 og 1/2 tíma.....ég fann fyrir miklum strengjum í löppunum og maganum en það er bara gott Happy Gerði þó 200 magaæfingar til að enda daginn með stæl Cool

Svo fór ég að versla aðeins í dag, fór til mömmu minnar og síðan bara heim að læra Smile Svo elduðum við litla skvísa matinn og erum bara að dúlla okkur, erum reyndar á leið í heitt og gott bað til að slaka aðeins á eftir erfiðan dag....Halo

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag, svo ég bið að heilsa ykkur í bili og vona að þið hafið það sem allra best Joyful

Kær kveðja Pæjan Kissing


Jæja, ný vika hafin..

Hæ hæ Smile

Jæja fór í ræktina í dag og var í klukkutíma að brenna Cool Það var fínt að fara í dag eftir helgina....

Ég náði svo í snúlluna mína og við fórum aðeins til mömmu minnar að hjálpa henni, síðan komum við heim og er ég búin að vera að taka til í skápunum á heimilinu síðan Blush

Litla snúllan mín á afmæli eftir ca 2 vikur og það verða 2 veislur, önnur fyrir vini (fjölskyldu pabba hennar) og svo fyrir mína fjölskyldu...við urðum að hafa þetta svona því að þetta er svo svakalegur fjöldi að þetta er eins og fermingarveisla Shocking 

En hún er að verða 3 ára og er algjör pæja.....hún ætlar sko að fá ALLT í afmælisgjöf og þá aðallega Barbie og Sollu Stirðu föt og dót, ég held að hún sé alveg að missa sig út af þessu en það er bara dúllulegt InLove

Ég hef ekki mikið að segja ykkur í dag annað en þetta og bara að við höfum það gott Smile Það er ekki hægt að biðja um meira....er það nokkuð Grin

En ég er að fara að læra núna svo ég vona að þið hafið það sem allra best og þangað til næst Wink Verið góð við hvert annað Halo

Kær kveðja Pæjan Kissing


HALLÓ......Nýjar tölur :o)

Hæ, hæ og hó Smile

Jæja, ég fór í ræktina í morgun, brenndi í 20 mín og svo fórum við inn í sal að gera æfingar með lóðum Devil Ég var allt í allt í 1 og 1/2 tíma að æfa í dag.

Svo var ég vigtuð og mæld....og hér kemur niðurstaðan.

23 júlí......                                 8 september .......

Þyngd : 121,9 kg                      Þyngd : 114,1 kg   = 7,8 kg farin

Fituprósenta : 44,5 %              Fituprósenta : 40,5 %  = 4 % farin

Upphandleggur : 44,3 cm        Upphandleggur : 40,1 cm  = 4,2 cm farnir

Læri : 82,7 cm                          Læri : 80,7 cm  = 2 cm farnir

Mjaðmir : 139,7 cm                  Mjaðmir : 133,6 cm  = 6,1 cm farnir

Mitti : 125,3 cm                       Mitti : 120,2 cm  = 5,1 cm farnir

Já, þá er það komið niður á blað...................Blush   

Það eru s.s 7,8 kg farin á 1 mánuði (2 vikur af þessum tíma fóru í veikindi og eina vikuna var ég alein að brenna allan tímann....ég s.s tel ekki vikurnar 2 með) og 17,4 cm í allt, sem er bara rosalega gott eins og þjálfarinn minn sagði Smile Hann sagði mér að þeir karlmenn sem hafa verið hjá honum í þjálfun séu að missa 10 kg svo að ég nokkuð ánægð með þessar tölur Grin

Svo núna fer ég að taka á því sjálf og brenn áfram 3 sinnum í viku og lyfti 2 í viku. Ég ætla a halda áfram að mæta 5 sinnum í viku, því að það hentar mér mjög vel. Ég ætla svo að koma með nýjar tölur á 2 vikna fresti eða svo.....Wink Ég skrifaði niður allar þær æfingar sem hann er búin að láta mig gera hvort sem ég hef verið að brenna eða að lyfta, svo ég er með prógrammið frá honum áfram.

Hann var rosalega ánægður með árangurinn og sagði mér að ég væri búin að standa mig eins og hetja......hann talar líka alltaf um það hvað ég sé þrjósk og hvað það sé gaman að fylgjast með mér að æfa því ég tek þetta bara á þrjóskunni.....Whistling En já þá hafið þið það....endilega haldið áfram að fylgjast með og kommenta hjá mér, því að baráttunni er ekki lokið....ekki nærri því strax Wink

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag og vona að þið eigið góða helgi það sem eftir er að henni.....Tounge

Kær kveðja Pæjan Kissing

 

 


Burn baby burn ........

Hæ og hó Smile

Ég fór í ræktina í dag klukkan 14 og æfði í 1 klukkustund. Mér fannst dagurinn í dag frekar erfiður því að ég er með strengi dauðans út um allt Devil

Á morgun er svo komið að því........VIGTUNARDAGUR Tounge Já ég verð vigtuð, fitu % mæld og ummál tekið Errm Ég er pínu stressuð og kvíði eilítið fyrir morgundeginum......og aðallega hvort ég sé búin að stand mig nógu vel Halo en það verður víst að bíða þangað til á morgun.

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, því ég er að fara í bað og svo að lúlla, ég læt vita á morgun hvernig gekk ef ég verð ekki í of miklu sjokki Shocking Hafið það sem allra best dúllurnar mínar.

Kær kveðja Pæjan Kissing


Jæja tveggja daga færsla....:o)

Hæ hæ......Smile

Jæja, fór í ræktina í gær 5 sept en hafði ekki tíma að skrifa inn í gær Blush

Ég var í 1 og 1/2 tíma í gær að brenna, fór í 10 mín á hvert tæki og endaði á að ég var látin fara upp og niður stigana aftur....Sick Það eru s.s 35 tröppur í húsinu þar sem ég er að æfa og ein ferð var niður stigana og upp aftur....það var s.s 1 ferð og ég fór 20 svoleiðis Devil

Þetta er í 3 skiptið sem ég hef farið stigana og í fyrsta skiptið var þetta ógeðslega erfitt en núna var þetta miklu skárra Smile svo eitthvað er ég að venjast þessu öllu.

Svo fór ég í morgun klukkan 9.00 og brenndi í klukkutíma og fór svo aftur klukkan 14.00 , lyfti, boxaði og gerði ýmsar aðrar æfingar í 1 og 1/2 tíma W00t Mér fannst frábært að boxa því ég er ekki frá því að þetta losi um spennu sem er í manni Cool Fékk mér svo prótein drykk og prótein SLAM....sem er eitthvað nýtt og því ákvað ég að prófa.

Ég verð mæld, vigtuð og allan pakkann á laugardaginn klukkan 11, því að þá er ég búin með mánuðinn minn í einkaþjálfuninni Crying En ég hugsa að ég reyni bara að taka annan mánuð hjá honum í nóvember...kannski miðjan nóv til miðjan des svo maður verði nú flottur um jólin Grin

En ég þakka ykkur öllum fyrir kommentin og bið ykkur að halda áfram að skrifa hjá mér....því að það er pepp að heyra frá ykkur Wink Svo er líka bara svo gaman að sjá hverjir heimsækja síðuna mína svo endilega allir að kvitta Happy

Ég ætla að kveðja núna.....bið að heilsa ykkur öllum og vona að þið hafið það sem allra best Joyful

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Jæja ég er öll að koma til :o)

Hellú hellú Smile

Jæja komin heim og er pínu þreytt í dag, ég fór í skólann í morgun og var til hádegis Whistling Fór svo í ræktina klukkan 13.30 og var að koma heim núna fyrir korteri síðan Cool Ég bar á mig cello kremið frá Volare, það á að stinna og styrkja húðina, svo ég er farin að bera það á mig áður en ég fer að æfa Cool

Í dag fór ég á skíðavélina í 30 mín, hlaupabrettið í 10 mín, þrekhjólið í aðrar 10 mín, skíðavélina m. f. hendur í 10 mín, aftur á skíðavélina í 10 mín og gerði nokkrar æfingar í lokin Cool

Þetta var góður dagur og ég er öll að lagast í löppinni en það er enn pínu sárt að stíga alveg niður í hælinn Crying Svo er það bara að lyfta á morgun........er enn með strengi frá því á mánudaginn í upphandleggjum, maga, baki og lærum Devil .....en ég læt mig hafa það bara, fer í heitt og gott bað á eftir og ber svo íþróttakremið á mig og vona að ég lagist eitthvað af því.

Jæja ég ætla að fara að læra, hafið það gott Grin

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Það er svo gaman að vera til :o)

Hej alle sammen Grin

Ég var að koma heim úr skólanum....fór í ræktina klukkan 11 í morgun því svo var skóli eftir hádegi Wink Það var voða fínt. Ég hitaði upp í 5 mín og svo var tekið á því inn í sal með því að lyfta og gera ýmsar æfingar Cool

Já...ég er ekki frá því, þrátt fyrir strengi og svoleiðis Gasp að þá er maður miklu orkumeiri og hressari yfir daginn, mér finnst líka svo gaman í ræktinni núna því að ég finn þvílíkan mun á mér W00t

Svo fór ég í skólann í 3 tíma og er nýkomin heim...Smile Ég hef eitthvað gert um helgina með mjöðmina á mér...ég á það til að hrökkva úr mjaðmaliðnum öðru megin af og til og því er ég ansi hrædd um að það sé málið...því að ég er svo kvalin hægra megin Frown Ég æfði nú samt í morgun en var mjög aum og fann til við ýmsar hreyfingarUndecided En þetta hlýtur að lagast því að ég er yfirleitt svona í 2-3 daga og svo lagast það....svo ég verð bara að sjá til Blush

Hef þetta ekki lengra í dag....bið að heilsa ykkur öllum Smile

Kær kveðja Pæjan Kissing


Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband