Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Góðan daginn gott fólk....

Jæja, þá fór ég í ræktina í dag og var að brenna, brenna, brenna Devil

Já ég var að brenna í dag, fór á skíðavélina í 30 mín, hlaupabrettið í 10 mín og aftur á skíðavélina í 30 mín....já gott fólk það er sko bara harkan sex Cool

Þetta var góður dagur, mamma mín er komin aftur í bæinn frá Fáskrúðsfirði og það var sko fjör á bænum þegar litla skottið sá ömmu sína aftur eftir 5 vikur LoL

Ég er að passa mig rosalega hvað ég borða og drekk einungis VATN Halo enda besti drykkurinn sem við eigum Wink

Ég þakka ykkur öllum fyrir góð komment og bið ég ykkur endilega að halda áfram að kvitta fyrir komuna, því það hjálpar svo mikið að fá PEPP Happy

En elsku dúllurnar mínar, ég bið að heilsa ykkur í bili, farið vel með ykkur og verið góð við náungann Smile.......því  Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Grin

Kær kveðja Pæjan Kissing


Jæja.....önnur vikan búin :-)

Hæ, hæ....já þá er 2 vikan búin og mín búin að standa sig eins og hetja  Grin

Í dag var ég að brenna...ég fór á skíðavélina í 30 mín, svo á hlaupabrettið í 10 mín og svo aftur á skíðavélina í aðrar 30 mín  Sick Já  þetta var erfitt ennnnnn ÉG gat það...stolt af sjálfri mér.

Á mánudaginn síðasta s.s. Þann 23 júlí var ég 121,9 kg, í dag þegar ég fór á viktina eftir æfingu var ég 116, 3 kg....það eru farin 5 kg og 600 gr  W00t Ég er mjög ánægð með árangurinn og er sko líka alveg búin að púla þokkalega mikið. Ætla mér að vera komin í ca 114 næsta föstudag þegar þjálfarinn minn kemur til baka......Grin  ÉG GET, ÉG SKAL, ÉG ÆTLA....

Ég fór síðan og náði í litlu skvísuna mína á leikskólann og síðan fórum við heim Joyful

Á svo að hvíla mig á morgun og láta strengina líða úr mér.....Sleeping En svo á sunnudaginn fer ég líka á þrekhjólið í 30 mín og í labbitúrinn minn í 20-30 mín. Það þýðir ekkert að hætta....ég ætla að taka þetta með TROMPI Cool

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag gott fólk, bið alla að fara varlega um helgina og MUNIÐ......NEI ÞÝÐIR NEI.....Devil You know the rest....right?

Já eitt áður en ég kveð.....Þakkir til þeirra sem hafa kommentað og gefið mér pepp....það hjálpar mér ótrúlega mikið.....endilega verið dugleg að KVITTA  Wink Thank you o so much guys Heart

Kv. Pæjan Kissing

 


Klukkið búið og hér koma fleiri fréttir.

Jæja...var að koma úr ræktinni áðan, rosa stuð og geggjað gaman LoL

Í dag var ég að brenna í 30 mín, lyfti svo og gerði ýmsar æfingar í 60 mín með þjálfaranum mínum.

Ég steig aftur á viktina og viti menn...600 grömm FARIN Í VIÐBÓT....W00t Jamm ég er ekki að ljúga....ég er rosalega ánægð með þennan árangur og sömuleiðis þjálfarinn. 

Þjálfarinn minn er að fara í smá frí á morgun og kemur í næstu viku, svo ég verð að brenna á morgun, svo aftur á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Á föstudeginum verður líka tekið á því og lyft og gert æfingar Devil.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengur í dag elskurnar mínar...svo ég kveð ykkur og óska þess að það fari sér engin að voða um helgina og munið bara að HAFA ÖRYGGIÐ Á ODDINUM..InLove

Knús og kossar frá mér , þangað til seinna...Kv. Pæjan Kissing


Ég var klukkuð svo nú á ég að......

........Segja ykkur eitthvað sem ekki margir vita um mig....hmmmm, látum okkur sjá Undecided

1. Ég er alltaf þrífandi W00t

2. Ég átti að heita Birna Guðlaug þar sem amma mín sem ég er skírð eftir kallaði og skrifaði sig alltaf því nafni en fékk svo nafnið Guðlaug Birna, því það var hennar rétta nafn.

3. Ég kann að mála...(ekki margir sem vita það) Whistling

4. Ég ELSKA raunveruleikaþætti.

5. Ég er með áráttu með hvar hlutirnir eiga að vera og að allt sé á sínum stað Blush

6. Ég hef ALDREI ( 7.9.13 ) smakkað ólívur.

7. Ég er með geitungafóbíu (OFSAHRÆÐSLU....BIG TIME) Gasp

8. Mig langar til að vera grafískur hönnuður.

9. Mér hefur alltaf fundist erfitt að segja NEI við fólk....þangað til núna Grin

10. Ég elsssskaaaaa svið og sviðasultu.

Já þar hafið þið það, ég vona að þið skemmtið ykkur vel að lesa þetta.....Smile

Kv. PæjanKissing


Vúhúúú......næstum 5 kg farin :-)

Jæja gott fólk.....Cool

Ég var að koma heim úr ræktinni og fór aftur á vigtina og hvað haldiði....... næstum 5 kg farin síðan á mánudaginn síðasta......Happy  Ég er mjög ánægð með þetta.

Í dag var ég að brenna....var á skíðavélinni í 30 mín, hlaupabrettinu í 15 mín og aftur á skíðavélina í 10 mín  Cool Ógó töffari.

Mér líður rosalega vel og finnst svo gaman......mín kemur bara heim og vill ekki einu sinni borða óhollt  Wink

En ekki meira í bili, hafið það sem allra best og þangað til næst  Kissing

Knús og kossar Pæjan Kissing

 


« Fyrri síða

Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

221 dagur til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 304

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband