My God, hvað manni líður vel....

Jæja var að koma heim úr ræktinni, ég púlaði í 1 og 1/2 tíma í dag. Grin

Ég byrjaði á skíðavél í 20 mín, fór svo og lyfti með þjálfaranum mínum, fór svo aftur á skíðavélina í 10 mín, aftur að lyfta og gera æfingar, fór svo aftur á skíðavélina í aðrar 20 mín og loks gerði ég rass og læra æfingar á dýnu.Happy Fékk svo prótein drykkinn minn eftir æfingu og hann er geggjað góður á bragðið, ekki svona væmin. Svo er ég að taka inn töflur til að losa mig við umfram vökva í líkamanum. Grin

Þjálfarinn minn er bara æðislegur, hann er hress og skemmtilegur og manni langar að standa sig vel. Joyful  Á föstudaginn verð ég svo viktuð aftur og þá kemur í ljós............Blush Ég er bara svo feginn að vera byrjuð.

Fór svo og náði í skvísuna mína á leikskólann og komum svo heim. Þetta er búið að vera rosalega góður dagur og ég er mjög stolt af sjálfri mér hvað ég er dugleg. Cool

Ætlum svo að hafa fisk í kvöldmatinn og drekka vatn, því jú það verður líka að passa matarræðið.

En ég ætla að kveðja í bili, fer svo í 20 mínútna labbitúrinn í kvöld.

En bestu kveðjur til ykkar sem þetta lesa, þangað til næst.

Pæjan Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ sæta.

rakst á bloggið þitt og ákvað að kvitta fyrir mig.

Kv. Tinna

Tinna (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 17:06

2 identicon

Hæ skvísa

Loksins kemur eitthvað blogg frá þér.

Þú átt eftir að fara létt með þetta átak, þú hefur nú þrjóskuna til þess. En gagni þér rosalega vel í átakinu.

Sjáumst svo á þjóðhátíðinni,

kveðja frá Eyjum

Þóra Sigga (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 21:41

3 identicon

Hæ sæta.  Hrikalega líst mér vel á þetta hjá þér, og ekki skemmir ef þjálfarinn er sætur OG skemmtilegur ;-) Það er ekki spurning að þú stendur þig í þessu þar sem þú ert búin að taka ákvörðun um að gera e-ð í málunum og farin af stað, það er nefnilega erfiðasti hjallinn. Svo nú er bara allt upp á við hjá þér og niður á við í kg fjöldanum .......  Verðum í bandi þegar við verðum komin suður aftur þar sem við erum í sumarfríi og erum bara að hafa það huggulegt. Knús og kossar til ykkar  Dagný og co

Dagný (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

221 dagur til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 304

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband