HALLÓ......Nýjar tölur :o)

Hæ, hæ og hó Smile

Jæja, ég fór í ræktina í morgun, brenndi í 20 mín og svo fórum við inn í sal að gera æfingar með lóðum Devil Ég var allt í allt í 1 og 1/2 tíma að æfa í dag.

Svo var ég vigtuð og mæld....og hér kemur niðurstaðan.

23 júlí......                                 8 september .......

Þyngd : 121,9 kg                      Þyngd : 114,1 kg   = 7,8 kg farin

Fituprósenta : 44,5 %              Fituprósenta : 40,5 %  = 4 % farin

Upphandleggur : 44,3 cm        Upphandleggur : 40,1 cm  = 4,2 cm farnir

Læri : 82,7 cm                          Læri : 80,7 cm  = 2 cm farnir

Mjaðmir : 139,7 cm                  Mjaðmir : 133,6 cm  = 6,1 cm farnir

Mitti : 125,3 cm                       Mitti : 120,2 cm  = 5,1 cm farnir

Já, þá er það komið niður á blað...................Blush   

Það eru s.s 7,8 kg farin á 1 mánuði (2 vikur af þessum tíma fóru í veikindi og eina vikuna var ég alein að brenna allan tímann....ég s.s tel ekki vikurnar 2 með) og 17,4 cm í allt, sem er bara rosalega gott eins og þjálfarinn minn sagði Smile Hann sagði mér að þeir karlmenn sem hafa verið hjá honum í þjálfun séu að missa 10 kg svo að ég nokkuð ánægð með þessar tölur Grin

Svo núna fer ég að taka á því sjálf og brenn áfram 3 sinnum í viku og lyfti 2 í viku. Ég ætla a halda áfram að mæta 5 sinnum í viku, því að það hentar mér mjög vel. Ég ætla svo að koma með nýjar tölur á 2 vikna fresti eða svo.....Wink Ég skrifaði niður allar þær æfingar sem hann er búin að láta mig gera hvort sem ég hef verið að brenna eða að lyfta, svo ég er með prógrammið frá honum áfram.

Hann var rosalega ánægður með árangurinn og sagði mér að ég væri búin að standa mig eins og hetja......hann talar líka alltaf um það hvað ég sé þrjósk og hvað það sé gaman að fylgjast með mér að æfa því ég tek þetta bara á þrjóskunni.....Whistling En já þá hafið þið það....endilega haldið áfram að fylgjast með og kommenta hjá mér, því að baráttunni er ekki lokið....ekki nærri því strax Wink

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag og vona að þið eigið góða helgi það sem eftir er að henni.....Tounge

Kær kveðja Pæjan Kissing

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva

Til hamingju með þetta dúlla nú ertu búinn að sanna það fyrir sjálfri þér að þú getur misst sjö kíló nú er bara að takast á við næst 7 og svo koll af kolli ......

Ég elska þið Lulla mín þú ert æði guð bless.... og allt gott til þín.

Eva , 8.9.2007 kl. 14:21

2 identicon

Glæsilegur árangur hjá þér

Ég er ekkert smá stolt af þér hvað þú ert búin að vera dugleg og taka þetta með trompi. Þú ert frábær

Gangi þér vel með áframhaldið.

Kveðja frá Eyjum 

Þóra Sigga (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 16:54

3 identicon

Halló sæta. Æðislegur árangur hjá þér :) Ég er ekkert smá stolt af þér. Vissi alveg að þú hefðir þetta í þér :) Sorry að ég hringdi ekki í dag. Var að vinna og var búin að steingleyma að þetta væri vinnuhelgi :/ En ég heyri vonandi fljótlega i þér. Bestu kveðjur úr Vesturbænum

Esther frænka (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 22:18

4 identicon

Flott hjá þér! þetta er geggjaður árangur hjá þér stelpa! vóh ef ég næði þó ekki væri helmingi eða 1/3 af þessum árangri á einum mánuðí þá yrði ég ánægð :)

Má ég spyrja þig að 2 spurningum?

Hvernig er mataræðið hjá þér? meina, ertu á ddv, hef ekki tekið eftir því hingða til, gæti hafa farið framhjá mér :)

Og hvar ertu að æfa? ég er að leita að einkaþjálfara, en ég er upp í wc í spöng og veit ekki hvernig ég á að velja þjálfara! Ætla að kaupa mér 2 mánuði.

Vá! þetta er ekkert smá góður árangur hjá þér! Djöfull ertu dugleg :)

Gangi þér áfram svona vel :) þú getur þetta og tekur þetta í nösina! hahaha

Keep up the excelent work!

mimzy (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 17:43

5 identicon

Hæ Mimzy, þú átt skilaboð í kommentunum hjá þér skvís :o)

utopia (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 20:04

6 identicon

Vá !!!! mikið rosalega ertu dugleg kona !!! Til hamingju með árangurinn þetta er æði, þú stendur þig sko ekkert smá vel ! ég lýt sko upp til þín ! :D halda svona áfram skvís ! 

UNNUR 

unnur (IP-tala skráð) 10.9.2007 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

236 dagar til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 255

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband