Jæja, ég er enn á lífi...

Hæ og hó...Smile

Jæja, ég fór í ræktina á fimmtudag og föstudag og púlaði eins og vanalega....það var lyft á fimmtudag og brennt á föstudag, gerðar magaæfingar og ýmislegt fleira Cool

Fórum svo í afmæli um helgina á Selfoss og það var HRÆÐILEGT veður á heiðinni.....Woundering Við lentum í þoku, rigningu, slyddu, hagléli og snjókomu...þetta var ekki gaman.

Það var voða gaman í afmælinu og síðan þegar við héldum heim á leið, þá lentum við í því að koma að slysi uppi á heiði þar sem 2 bílar höfðu rekist saman....Frown

Það voru sjúkrabílar og löggubílar og ég veit ekki hvað og hvað...þetta var ekki skemmtileg aðkoma, svo var okkur tilkynnt að það yrði allavega 2 tíma bið svo við snérum við og fórum þrengslin og þar var þetta fína veður W00t

Svo er bara búið að vera bilað að gera í lærdómi Blush Ég er mikið í þrívíddarteikningum og grafík núna en mér finnst það algjört æði svo það er bara gaman hjá mér í skólanum Halo

Við erum farin að spekúlera og skipuleggja afmælisveisluna hjá skvísunni og henni er farið að hlakka svo mikið til að fá alla gestina og svo auðvitað pakka InLove  Þetta verður voða gaman, en ég bara er ekki að trúa því að hún sé orðin 3ára....OMG...hvað tíminn er fljótur að líða.

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengur, er að fara að læra og hugsa um matinn og prinsessuna mína, hafið það gott og verið góð við hvort annað Heart

Kær kveðja Pæjan Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert rosa dugleg að æfa þig þú hlítur að vera stollt :*

Unnur ( jeg-get) (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband