Ekkert fjör á þessum bæ.......

hæ, hæ allir.......héðan er ekki gott að frétta því að við mæðgurnar liggjum í ógeðslegri pest Sick

Við náðum okkur í einhverja pest og erum búnar að vera lasnar síðan á laugadagskvöld Frown........og það er ekki bara eitthvað eitt heldur erum við báðar með háan hita, beinverki dauðans, hornös, eyrnaverk og ég er með hálsbólgu Crying

Já þetta er sko ekki skemmtilegt ástand og við liggjum bara eins og klessur Pinch

Ég fór því ekki í ræktina í dag og fer ekki á morgun með þessu áframhaldi Frown......sem ég er ekki að fíla, því að nú er þjálfarinn minn kominn aftur, en NEI þá þarf ég endilega að verða lasin.....*pirr*

Jæja það þýðir víst lítið að vera að böggast yfir þessu.....vildi bara leyfa ykkur að fylgjast með svo þið hélduð nú ekki að ég væri búin að gefast upp Blush

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, því ég er ekki í neinu standi að vera að blogga neitt núna.....hafið það gott og ég heyri í ykkur um leið og okkur er farið að batna Wink

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Góðir hálsar......:o)

Sæl verið þið  Cool

Jæja, jæja, ég var að koma úr ræktinni og ég var bara að brenna í dag  Smile

Ég var í 1 og 1/2 tíma að æfa í dag og púlaði og púlaði Devil fór á skíðavélina í 40 mín, lyfti síðan aðeins ein því að þjálfarinn minn er ókominn, en ég gerði eitthvað af æfingunum sem hann hefur kennt mér gerði það í 20 mín og fór síðan aftur á skíðavélina í aðrar góðar 30 mín Shocking

Já ég var vel þreytt enda tók þetta ansi mikið á mín blessuðu hné, en ég reyndi að hugsa ekki um sársaukann heldur bara hvað ég væri dugleg og taldi niður tíman og peppaði sjálfa mig áfram Grin

EN JÆJA ....... ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ GOTT FÓLK W00t TÖLURNAR SEM VIGTIN SÝNDI Í DAG VORU 115, 6 KG......svo að.......síðan á þriðjudaginn þann 7 ágúst (það eru 4 dagar) hafa farið 700 grömm......sem er að ég held ágætt Undecided

Ég náði ekki því sem ég ætlaði mér Frown sem var 114 en ég tek bara meira á eftir helgi....ég ætla ekki að láta það hafa nein áhrif á mig þó ég hafi ekki náð því sem ég vildi.....NO CHANCE IN HELL IM GIVING UP.......LoL BELIVE YOU ME......hahaha

En ætla ekki að hafa þetta lengra í dag og bið að heilsa ykkur öllum, hafið það gott og eigið yndislega helgi  Smile

Kær kveðja Pæjan Kissing

 


Tíminn er fljótur að líða.....

Sælt veri fólkið Smile

Ég fór í ræktina í dag klukkan 13.30 og byrjaði að fara á skíðavélina í 30 mín, því næst fór ég og lyfti  inn í sal í ca 20 mín og fór síðan aftur á skíðavélina í 30 mín.......s.s púlaði í 80 mín í dag Devil Fékk mér svo próteindrykkin minn eftir æfingu og hélt síðan heim á leið, sæl og glöð Joyful

Já ég get sagt ykkur það að ég er orðin mikið orkumeiri en ég nokkurn tímann var fyrir 3 vikum W00t     sem er alveg frábært.

Þjálfarinn minn kemur á laugardagskvöldið svo að ég er bara að brenna áfram...og ég lyfti nú aðeins í dag Tounge Ég ætla ekki að fara á vigtina fyrr en á morgun eftir æfingu....svo ég bíð spennt með að sjá hvað verður farið mikið í viðbót Grin 

En það sem er að renna af mér er líka vatn, ég var með svakalegan bjúg á löppunum og í andlitinu......og fólk er strax farið að sjá mun á mér í andlitinu....svo ég er voða ánægð með árangurinn  LoL

Mér líður svo vel og ég er svo ánægð að vera byrjuð að gera eitthvað í mínum málum, því GOD KNOWS....það var komin tími til Blush En BETRA SEINT EN ALDREI Halo

Ég ætla að láta þetta duga þangað til á morgun og bið að heilsa ykkur öllum....hafið það sem allra best og endilega kvittið fyrir komuna, það er svo gaman að sjá hverjir kíkja .....þó að ég þekki ykkur ekkert Wink og auðvitað alltaf gaman að fá pepp.

Kær kveðja Pæjan Kissing


Burn baby burn .......

Sæl verið þið  Smile

Jæja var að koma heim úr ræktinni, þurfti að fara aðeins fyrr í dag svo ég fór klukkan 13.00 og fór á skíðavélina í 30 mín, hlaupabrettið í 10 mín og aftur á skíðavélina í 30 mín Devil 

Ég svitnaði sko vel í dag.....Sick ég er kominn upp í 123 per min, en var áður eða þegar ég byrjaði í 70 svo það er mjög gott.

Þá finn ég líka aðeins meira fyrir þessu og auðvitað svitna meira fyrir vikið Shocking

Ég hef ekkert farið á vigtina í þessari viku Joyful og ætla mér ekkert á hana fyrr en á föstudaginn.

En þarf að fara núna því ég er að fara a stússast fyrir móðir mína, hef kannski eitthvað meir að segja á morgun......Wink en þangað til hafið það sem allra best og þið sem eruð í átaki......Gangi ykkur vel Cool

Kær kveðja Pæjan Kissing


Góðan daginn gott fólk....

Jæja, þá fór ég í ræktina í dag og var að brenna, brenna, brenna Devil

Já ég var að brenna í dag, fór á skíðavélina í 30 mín, hlaupabrettið í 10 mín og aftur á skíðavélina í 30 mín....já gott fólk það er sko bara harkan sex Cool

Þetta var góður dagur, mamma mín er komin aftur í bæinn frá Fáskrúðsfirði og það var sko fjör á bænum þegar litla skottið sá ömmu sína aftur eftir 5 vikur LoL

Ég er að passa mig rosalega hvað ég borða og drekk einungis VATN Halo enda besti drykkurinn sem við eigum Wink

Ég þakka ykkur öllum fyrir góð komment og bið ég ykkur endilega að halda áfram að kvitta fyrir komuna, því það hjálpar svo mikið að fá PEPP Happy

En elsku dúllurnar mínar, ég bið að heilsa ykkur í bili, farið vel með ykkur og verið góð við náungann Smile.......því  Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Grin

Kær kveðja Pæjan Kissing


Jæja.....önnur vikan búin :-)

Hæ, hæ....já þá er 2 vikan búin og mín búin að standa sig eins og hetja  Grin

Í dag var ég að brenna...ég fór á skíðavélina í 30 mín, svo á hlaupabrettið í 10 mín og svo aftur á skíðavélina í aðrar 30 mín  Sick Já  þetta var erfitt ennnnnn ÉG gat það...stolt af sjálfri mér.

Á mánudaginn síðasta s.s. Þann 23 júlí var ég 121,9 kg, í dag þegar ég fór á viktina eftir æfingu var ég 116, 3 kg....það eru farin 5 kg og 600 gr  W00t Ég er mjög ánægð með árangurinn og er sko líka alveg búin að púla þokkalega mikið. Ætla mér að vera komin í ca 114 næsta föstudag þegar þjálfarinn minn kemur til baka......Grin  ÉG GET, ÉG SKAL, ÉG ÆTLA....

Ég fór síðan og náði í litlu skvísuna mína á leikskólann og síðan fórum við heim Joyful

Á svo að hvíla mig á morgun og láta strengina líða úr mér.....Sleeping En svo á sunnudaginn fer ég líka á þrekhjólið í 30 mín og í labbitúrinn minn í 20-30 mín. Það þýðir ekkert að hætta....ég ætla að taka þetta með TROMPI Cool

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í dag gott fólk, bið alla að fara varlega um helgina og MUNIÐ......NEI ÞÝÐIR NEI.....Devil You know the rest....right?

Já eitt áður en ég kveð.....Þakkir til þeirra sem hafa kommentað og gefið mér pepp....það hjálpar mér ótrúlega mikið.....endilega verið dugleg að KVITTA  Wink Thank you o so much guys Heart

Kv. Pæjan Kissing

 


Klukkið búið og hér koma fleiri fréttir.

Jæja...var að koma úr ræktinni áðan, rosa stuð og geggjað gaman LoL

Í dag var ég að brenna í 30 mín, lyfti svo og gerði ýmsar æfingar í 60 mín með þjálfaranum mínum.

Ég steig aftur á viktina og viti menn...600 grömm FARIN Í VIÐBÓT....W00t Jamm ég er ekki að ljúga....ég er rosalega ánægð með þennan árangur og sömuleiðis þjálfarinn. 

Þjálfarinn minn er að fara í smá frí á morgun og kemur í næstu viku, svo ég verð að brenna á morgun, svo aftur á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Á föstudeginum verður líka tekið á því og lyft og gert æfingar Devil.

Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengur í dag elskurnar mínar...svo ég kveð ykkur og óska þess að það fari sér engin að voða um helgina og munið bara að HAFA ÖRYGGIÐ Á ODDINUM..InLove

Knús og kossar frá mér , þangað til seinna...Kv. Pæjan Kissing


Ég var klukkuð svo nú á ég að......

........Segja ykkur eitthvað sem ekki margir vita um mig....hmmmm, látum okkur sjá Undecided

1. Ég er alltaf þrífandi W00t

2. Ég átti að heita Birna Guðlaug þar sem amma mín sem ég er skírð eftir kallaði og skrifaði sig alltaf því nafni en fékk svo nafnið Guðlaug Birna, því það var hennar rétta nafn.

3. Ég kann að mála...(ekki margir sem vita það) Whistling

4. Ég ELSKA raunveruleikaþætti.

5. Ég er með áráttu með hvar hlutirnir eiga að vera og að allt sé á sínum stað Blush

6. Ég hef ALDREI ( 7.9.13 ) smakkað ólívur.

7. Ég er með geitungafóbíu (OFSAHRÆÐSLU....BIG TIME) Gasp

8. Mig langar til að vera grafískur hönnuður.

9. Mér hefur alltaf fundist erfitt að segja NEI við fólk....þangað til núna Grin

10. Ég elsssskaaaaa svið og sviðasultu.

Já þar hafið þið það, ég vona að þið skemmtið ykkur vel að lesa þetta.....Smile

Kv. PæjanKissing


Vúhúúú......næstum 5 kg farin :-)

Jæja gott fólk.....Cool

Ég var að koma heim úr ræktinni og fór aftur á vigtina og hvað haldiði....... næstum 5 kg farin síðan á mánudaginn síðasta......Happy  Ég er mjög ánægð með þetta.

Í dag var ég að brenna....var á skíðavélinni í 30 mín, hlaupabrettinu í 15 mín og aftur á skíðavélina í 10 mín  Cool Ógó töffari.

Mér líður rosalega vel og finnst svo gaman......mín kemur bara heim og vill ekki einu sinni borða óhollt  Wink

En ekki meira í bili, hafið það sem allra best og þangað til næst  Kissing

Knús og kossar Pæjan Kissing

 


Koma svo......5 eftir, 4, 3, 2, 1 og búið.....:-)

Jæja, sælt veri fólkið  Smile

Ég var að lyfta í dag og við tókum sko þokkalega á í dag.....spurning hvort að strengirnir koma í heimsókn í kvöld eða morgun....Woundering En það er bara góðs viti....þá er þetta allavega að virka Happy

Ég var að æfa í ca 2 tíma í dag, byrjaði á að hita upp í 20 mín á skíðavélinni, lyfti svo lóðum, gerði magaæfingar, rass og læraæfingar og fleira svo mér líður sko þokkalega VEL núna  Grin Endaði svo á hlaupabrettinu í 10 mín.....brenna aðeins meira....Devil

En mér líður rosa vel og er svo ánægð að vera að gera eitthvað.....þjálfarinn minn er alveg æðislegur og ég mæli sko með honum við alla, hann er algjör töffari Cool

Svo er það auðvitað að passa áfram hvað maður er að setja ofan í sig og drekka VATN............Wink

En svo er það bara aftur á morgun og brenna, brenna, brenna...........brjálað að gera....Joyful

Ég var að hugsa að fara til eyja um helgina en það bæði spáir leiðinlega og einnig vil ég ekki missa úr þjálfuninni...svo ég hugsa að ég fari ekki í þetta skiptið......so sowwy Crying

En ég ætla að láta þetta duga í bili og ég segi bara hafið það gott þangað til næst......Halo

Knús......PæjanKissing


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Guðlaug Birna
Guðlaug Birna
Hæ hæ , ég er 28 ára ung kona og bý í Reykjavík ásamt 3 ára dóttur minni. Ég er í skóla og mér finnst skemmtilegast að vera með litlu pæjunni minni, syngja, semja ljóð, mála ofl.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

221 dagur til jóla

Hvað eru margir í átaki ?

Ert þú í átaki...?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 304

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband